Sigmundur Davíð, þér er hér með sagt upp störfum!
Contact the author of the petition
This discussion topic has been automatically created of petition Sigmundur Davíð, þér er hér með sagt upp störfum!.
Guest |
#3012016-04-01 08:01„Ég hef ekkert á móti fólki sem á peninga, sem elskar peninga, sem er vitlaust í peninga, en í pólitík þurfum við að aðgreina það fólk. Við þurfum að reka það fólk sem elskar peninga of mikið úr stjórnmálum, slíkt fólk er hættulegt í stjórnmálum ... Fólk sem elskar peninga ætti að helga sig iðnaði eða verslun, og margfalda auðinn. En stjórnmál snúast um baráttuna fyrir hamingju allra.“ - Pepe Mujica |
Guest |
#3022016-04-01 14:21I am worried about the future and happiness of the Islandic people. |
hvað er að?? |
#304 Re: Email2016-04-01 14:22Er svona erfitt fyrir þig að búa til nýan gmail?? Tekur skemmri tíma en að kommenta, fjandinn hafi það. |
Guest |
#306 Re: Re: Undirskriftarsöfnun ekki að virka sem skyldi.2016-04-01 15:22er reyndar ekki sá sem kom henni af stað og er þér sammála þetta þyrfti að laga
|
Guest |
#309 Re: Re: Undirskriftarsöfnun ekki að virka sem skyldi.2016-04-01 19:57#203: Fríða - Re: Undirskriftarsöfnun ekki að virka sem skyldi. Það ætti að hafa verið lagað. |
Guest |
#3102016-04-01 22:24Because I'm an icelandic citizen and wish for my country that corruption will end and that real democracy will become an option at last. |
Íslendingur |
#311 Sigmundur brýtur lögin um skráningu lögheimilis til að eiga möguleika á kosningu inná Alþingi!2016-04-02 01:45Sigmundur brýtur lögin um skráningu lögheimilis til að eiga möguleika á kosningu inná Alþingi! Forsætisráðherra brýtur lög með því að skrá lögheimili sitt þar sem hann býr ekki. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, færði lögheimili sitt úr Reykjavík og yfir í Norðausturkjördæmi fyrir síðustu kosningar, að Hrafnabjörgum 3 í Jökulsárhlíð á Héraði. Sigmundur heldur þó enn heimili í Ystaseli í Reykjavík. Þetta er óheimilt, því þó að í lögum um lögheimili sé að finna undantekningar sem snúa að þingmönnum, þá mega þingmenn einungis eiga skráð lögheimili á öðrum stað en þeir búa á hafi þeir búið á umræddu lögheimili áður en kosning til þings kallaði á búsetu þeirra á höfuðborgarsvæðinu. Var ekki búsettur að Hrafnabjörgum Þetta skrifar Teitur Atlason ritstjóri Jafnaðarmannsins, fréttablaðs Samfylkingarfélagsins í Reykjavík, í nýjasta blað félagsins. Teitur vekur athygli á því að í síðasta eintaki Jafnaðarmannsins hafi verið fjallað um kjörgengi Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur og þá ákvörðun yfirkjörstjórnar að úrskurða hana kjörgenga þrátt fyrir vafa um rétta lögheimilisskráningu. Um þau skrif var meðal annars fjallað áEyjunni. Teitur segir að Sigmundur hafi ekki átt fasta búsetu á Hrafnabjörgum áður en hann varð þingmaður og hann brjóti því lög með lögheimilisskráningu sinni.
Fólk á að fara eftir lögum Það að forsætisráðherra þiggi þjónustu frá einu sveitarfélagi, Reykjavík, en borgi útsvar í öðru, Fljótsdalshéraði, er afar sérkennilegt að mati Teits.
|
Íslendingur |
#312 Sigmundur flytur í hús sem Mágur hans átti og kom yfir á kennitölur tengdaforeldra Forsætisráðherra!2016-04-02 01:49Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, er nú að flytja í glæsihöll í Garðabæ við Skrúðás 7 ásamt eiginkonu sinni, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttir, og dóttur þeirra. Vísir greindi frá þessu þann 13. desember. Áður hefur Sigmundur búið í Seljahverfinu í Breiðholti. Samkvæmt fasteignaskrá eiga foreldrar Önnu Sigurlaugar, Páll Samúelsson og Elín Sigrún Jóhannesdóttir, húsið við Skrúðás sem metið er á 115 milljónir króna. En húsið á sér sögu líkt og flest hús. Fyrri eigandi hússins var eignarhaldsfélagið Stofn sem Stundin fjallaði nokkuð ítarlega um í september stuttu eftir að félagið var formlega úrskurðað gjaldþrota. Lýstar kröfur í búið voru tæplega 308 milljónir króna. Ríflega sex milljarða króna skuldir félagsins voru færðar niður eftir hrun.
Stofn var í eigu Boga Óskars Pálssonar, fyrrverandi stjórnarmanns Exista og mágs Sigmundar Davíðs. Bogi keypti húsið árið 2005 þegar allt lék í lyndi hjá honum en árið áður greiddi hann næst mest allra Reykvíkinga í opinber gjöld. Í aprílmánuði 2009 var húsið flutt yfir á félagið Stofn. Óljóst er hvað félag Boga borgaði Boga fyrir húsið. Þó er ljóst að Bogi undirritaði afsal bæði sem kaupandi og seljandi. Aðeins fáeinum mánuðum síðar, eða í september sama ár, var húsinu afsalað til núverandi eigenda þess, foreldra Boga. Stofn ehf. var eignarhaldsfélag Boga og fjölskyldu sem hélt utan um hlutabréf í Exista upp á 4,8 milljarða króna, sem urðu verðlaus við efnahagshrunið. Nafni félagsins var breytt 26. mars síðastliðinn, varð KSR ehf., tuttugu dögum áður en héraðsdómur úrskurðaði að taka skyldi búið til gjaldþrotaskipta. Lögheimili Sigmundar Davíð er eyðibýli að Hrafnabjörgum III í Norðausturkjördæmi. Þar hefur hann þó aldrei búið að neinu ráði en hann skipti um lögheimili í aðdraganda síðustu alþingiskosninga. Þá bentu skoðanakannanir til þess að Framsóknarflokkurinn myndi ekki ná manni inn í Reykjavíkurkjördæmum. |
Íslendingur |
#313 Sagan á bakvið Einbýlishúsið sem Sigmundur býr í í dag í Garðabæ..2016-04-02 01:50Engar eignir fundust í þrotabúi KSR ehf. eignarhaldsfélagi Boga Óskars Pálssonar, fyrrum stjórnarmanns Exista og mágs Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Félagið átti stóran hlut í Exista. Ríflega sex milljarða króna skuldir félagsins voru færðar niður eftir hrun. Málaferli Arion banka gegn Boga standa enn yfir vestanhafs. Sex milljarða skuldir voru færðar niðurSkiptum búsins lauk 6. ágúst síðastliðinn. Lýstar kröfur voru tæplega 308 milljónir króna. Bogi er bróðir Önnu Sigurlaugar Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíð Gunnlaugssonar forsætisráðherra. Hann var enn fremur formaður viðskiptaráðs frá 2000 til 2004. Félagið KSR ehf. hét áður Stofn ehf. og var eignarhaldsfélag Boga og fjölskyldu sem hélt utan um hlutabréf í Exista upp á 4,8 milljarða króna, sem urðu verðlaus við efnahagshrunið. Nafni félagsins var breytt 26. mars síðastliðinn, tuttugu dögum áður en héraðsdómur úrskurðaði að taka skyldi búið til gjaldþrotaskipta. Bogi var um tíma stjórnarmaður í Exista. DV greindi frá því árið 2012 að 6,3 milljarða króna skuldir félagsins hafi verið færðar niður að fullu þegar hluti lánasafns gamla Kaupþings var fluttur yfir í Arion banka í kjölfar hrunsins árið 2008. Styrkti stjórnarflokkanaRekja má auð Boga til fyrirframgreidds arfs frá föður hans, Páli Samúelssyni, sem hagnaðist um sjö milljarða króna árið 2005 þegar hann seldi Toyota-umboðið á Íslandi til Magnúsar Kristinssonar. Bogi var nokkuð fyrirferðarmikill fyrir hrun og má þar nefna að hann greiddi næstmest allra Reykvíkinga í opinber gjöld árið 2004. Fyrrnefnt félag Boga, Stofn, styrkti bæði Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn um þáverandi hámark fjárframlaga, 300 þúsund krónur, árið 2009. Mágur Boga, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, var kjörinn formaður Framsóknarflokksins í janúar 2009. Það ár var þegar ljóst að eignir félagsins í Exista væru í algeru uppnámi. Óvíst er hvort félagið hafi styrkt flokkana áður, þar sem fjölmörg fyrirtæki óskuðu eftir nafnleynd vegna stjórnmálastyrkja. Þó er ljóst að félag Boga hefur ekki styrkt flokkana eftir árið 2009, en raunar hefur lítið sem ekkert farið fyrir Boga á Íslandi eftir hrun. Flestir styrktaraðilar Framsóknarflokksins á árunum 2002 til 2006 óskuðu eftir nafnleynd, samkvæmt samantekt Ríkisendurskoðunar. Lánssamningur minnir á StímSamkvæmt ársreikningi Stofns árið 2008 voru skuldir félagsins lækkaðar úr sjö milljörðum króna niður í um 1,6 milljarða króna frá árslokum 2007 til ársloka 2008. Í sömu ársreikningum kemur fram að verðbréf félagsins, bréf í Exista ásamt öðrum, hafi lækkað um ríflega 4,6 milljarða króna á þessu tímabili og var verðmæti Exitstabréfanna komið niður í 300 milljónir króna. Athygli vekur að í ársreikningum kemur fram að félagið hafi ekki mátt selja bréfin nema með heimild Kaupþings. „Verðbréfaeign félagsins sem bókfærð er á 428 milljónir króna er veðsett fyrir eftirstöðvum langtímalána í árslok. Eftirstöðvar lánanna námu á sama tíma 1.122 milljónir króna. Þá eru kröfur í lánssamningum um að ekki er heimilt að selja verðbréfin án heimildar bankans,“ segir í ársreikningi. Með öðrum orðum mátti Stofn ekki selja hlutabréf í stærsta hluthafa Kaupþings án sérstaks leyfis frá hinum sama banka. Þetta skilyrði minnir á lánssamning eignarhaldsfélagsins Stím við Glitni. Það mál endaði með ákæru á þrjá menn; Lárusi Welding, fyrrverandi bankastjóra Glitnis, Jóhannesi Baldurssyni, einn stjórnenda bankans, og Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, fyrrverandi forstjóra Saga Capital. Aðalmeðferð í því máli hefst 16. nóvember næstkomandi. Öll mál tengd Exista, utan máls Lýðs Guðmundssonar stjórnarformanns sem var dæmdur í átta mánaða fangelsi, voru þó felld niður. Bogi var vitni í máli Lýðs. FlögufléttanÍ október árið 2012 rann félagið BOP ehf., sem var í eigu Boga, inn í Stofn ehf. Bæði félög áttu það sameiginlegt að hafa átt hlutabréf í svefnrannsóknarfélaginu Flögu Group. Bogi var stjórnarformaður Flögu Group þar til það var selt. Félaginu var slitið í lok árs 2011 en þar áður hafði það verið í frjálsu falli í Kauphöll Íslands frá 2007. Í upphafi árs 2009 voru þau varla pappírsins virði. Þrátt fyrir þetta keypti bandarískt félag, Natus Medical, dótturfélag Flögu, Embla Systems, á ríflega tvo milljarða króna stuttu áður en félaginu var slitið. Við slit á Flögu runnu allar eignir félagsins til Emblu Systems, sem nú var orðið dótturfélag Natus. Ljóst er að þrátt fyrir vandræðagang Flögu um árabil þá hefur Bogi Óskar hagnast vel á sölu félagsins til Natus þar sem hann var meðal stærstu hluthafa. Málaferli í gangi í BandaríkjunumSala Boga var þó ekki óumdeild en árið 2012 var greint frá í DV að tvær stefnur hefðu verið lagðar fram gegn Boga, en Arion banki og fyrrum viðskiptafélagi Boga stefndu honum í Denver í Colorado í Bandaríkjunum. Samkvæmt Þjóðskrá er Bogi með lögheimili í Bandaríkjunum. Báðar þessar stefnur tengdust sölu Boga á Emblu til Natus Medical. Eggert Dagbjartsson, fjárfestir sem dvalið hefur í Bandaríkjunum um áratugaskeið, stefndi Boga vegna sölu á Emblu, líkt og Arion banki, en þó undir öðrum formerkjum. Eggert átti stóran hlut í Flögu, 44 prósent, og segir hann að Bogi hafi aldrei sagt sér frá viðræðum um sölu á Emblu til Natus líkt og hann átt að gera þar sem Eggert var bæði hluthafi og stjórnarmaður. Eftir því sem Stundin kemst næst starfar Bogi í dag sem framkvæmdastjóri félagsins SleepImage. Bankinn áfrýjarArion banki taldi að Bogi hefði blekkt bankann og gerst sekur um fjársvik er hann keypti skuldir Flögu af bankanum með góðum afslætti árið áður. Bogi keypti 12 milljón dollara skuldir Flögu af bankanum á um 4 milljónir dollara. Aðeins þremur vikum síðar seldi Bogi dótturfélagið Emblu á 16 milljón dollara. Samkvæmt stefnu Arion banka gerði Bogi samning við bankann í árslok 2008 í tengslum við fjárhagslega endurskipulagningu Flögu um að selja eignir Flögu til að borga niður skuldir við bankann. Þar kemur fram að sumarið 2011 greindi Bogi bankanum frá því að ekkert gengi að finna kaupendur á eignum Flögu. Þá hafði hann þó hafið samningaviðræður við fyrrnefnt félag, Natus, um kaup þess á Emblu. Þetta hafi verið brot á samningi og krefst bankinn þess að samningi um kaup Boga á skuldunum verði rift. Arion banki tapaði málinu vestanhafs, en mun áfrýja. http://stundin.is/frett/ardur-afskriftir-og-gjaldthrot-hja-boga/ |
Íslendingur |
#314 Kona Sigmundar höfðaði Mál til að fá fyrirfram greiddann arf!2016-04-02 01:54Saga Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar er ævintýraleg. Hann er fæddur inn í fjölskyldu sem á milljónir og kvæntur inn í fjölskyldu sem á milljarða. Sjálfur á hann ásamt eiginkonu sinni, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, rúman einn milljarð en hún lítur á auðæfi foreldranna sem sinn framtíðararf og barðist fyrir því að hún fengi sinn hlut eins og bróðir hennar. Eiginkonan, Anna Sigurlaug, er á meðal ríkustu Reykvíkinganna og yngsti milljarðamæringurinn í borginni. Auðæfi hennar eru komin frá föður hennar, Páli Samúelssyni, sem hagnaðist verulega þegar hann seldi Magnúsi Kristinssyni, útgerðarmanni í Vestmannaeyjum, Toyota-umboðið árið 2005 en fyrir það fékk hann um sjö milljarða. Ýmsir sem þekkja til fjölskyldu Páls heyrðu af hörðum deilum innan fjölskyldunnar fyrir nokkrum árum. Deilurnar munu að mestu hafa snúist um peningana sem fjölskyldan fékk þegar Toyota-umboðið var selt og voru ansi sárar fyrir alla sem áttu hlut að máli. Sagan, sem hefur verið opinbert leyndarmál um árabil hjá þeim sem þekkja til fjölskyldunnar, segir að Anna Sigurlaug hafi fundist hún vera sniðgengin. Fjölskyldudeilurnar um arfinn urðu ansi harðar og er Sigmundur Davíð sagður hafa beitt sér mjög fyrir því að Anna sæti við sama borð og bróðir hennar. Nánar er fjallað um málið í helgarblaði DV. http://www.dv.is/frettir/2012/9/29/fjolskyldudeilur-vegna-arfs/ |
Íslendingur |
#315 Er Sigmundur að fá 130þ á mánuði fyrir að vera skráður í húsi sem hann hefur aldrei búið í?!2016-04-02 01:59Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er þjóðrækinn maður og vill búa í kjördæmi sínu. Samkvæmt þjóðskrá er hann til heimilis á Hrafnabjörgum III á Egilsstöðum. Eins og heimilisfangið segir til um þá er þetta þríbýli. En er þetta bara plat? „Sigmundur Davíð hefur nú bara gist hér eina nótt þó hann skráður til heimilis hér,“ segir Jónas Guðmundsson bóndi á Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð á Fljótsdalshéraði. Hann er eigandi hússins að Hrafnabjörgum III, þar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og fjölskylda hans eiga lögheimili. En afhverju? Alþingismaður fyrir kjördæmi utan Reykjavíkurkjördæma og Suðvesturkjördæmis (höfuðborgarsvæðis) fær mánaðarlega greiddar [131.400 kr.] í húsnæðis- og dvalarkostnað. Fjárhæðin er ætluð til að standa undir húsnæðis- og dvalarkostnaði (gistingu, fæði) á höfuðborgarsvæði eða í kjördæminu ef þingmaður á heimili á höfuðborgarsvæði. ( úr starfskjörum þingmanna). Sem sagt forsætisráðherra fær hundrað þúsund krónur nettó, fyrir að skrá lögheimili sitt fyrir austan. Er ekki kominn tími á að sannreyna þetta? |
Guest |
#3172016-04-02 23:48I don´t believe a word minister SDG says about his money or about anything else. I belong to the people in my country who is poor and sick, not able to work and forced to eat oatmeal 7days in a row every month because we get too little money. I don´t know in which country minister SDG lives, but it´s certainly not my country or people like me. He will never in this life be able to see the need of common people for respect or help because of sickness and poverty. It seems that he is incapable to see nothing but himself in desperate need to be among "yes" people, that is bad for him, but that´s just the way it is.I don´t think he´s working for us, the people and I trust him zero. Many of us will be glad when he finally leaves his job with all his lies, secrecy, and his disgust of common people, I hope he will also take with him his staff and political allies because they all seems to be like him:, one-way-thinking, blind and greedy without cabality to think for themselves, Friends of SDG seem to know only one word: yeas.The word the minister loves. I certainly don't trust a prime minister who has betrayed us in so many many ways with his lies. And I certainly don´t trust the two parties in Alþingi with the power to run the country. It´s like a waking nightmare. |
Guest |
#3182016-04-03 19:26Þessi maður talar ekki við eða til fólksins í þessu landi ... hann talar niður til þeirra ... síðan er það siðleysið, hrokinn og lygin í honum sem hann hefur verið uppvís af aftur og aftur ... |
Guest |
#3202016-04-03 19:56Sigmundur Davíð hefur svikið þjóðina, ásamt því að svíkja heimilin í landinu. Forsætirráðherra og ríkisstjórn hefur sent þúsundir fólks, þar með börn á götuna með því að svíkja kosningaloforð |
Guest |
#3222016-04-03 20:07Spilling.corruption in Iceland ( prime minister and other minesters are corrupt ) |
|
Petition Against the Installation of a Biodigester at Wilson Rd, Fairfield Township, Madison County, Ohio
Second chances: transforming incarcerated juveniles' lives
No Nukes for AI: Clearly a bad idea
To have Governor Wes Moore removed from office
Support Subsonic Society - Save our work places and Oslo's music history.
Is there something you want to change?
Change doesn't happen by staying silent. The author of this petition stood up and took action. Will you do the same? Start a social movement by creating a petition.
Start a petition of your ownOther petitions you might be interested in
PETITION FOR A FREE AND ACCESSIBLE BASKETBALL COURT FOR NAAS COMMUNITY
319 Created: 2023-12-30
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 319 |
12 months | 319 |
TD hopefuls! What Fermoy needs
197 Created: 2024-11-12
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 197 |
12 months | 197 |
TUS academics, staff, students, and graduates call for an immediate ceasefire in Gaza
181 Created: 2024-02-10
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 181 |
12 months | 181 |
New bus stop in boatstrand on local link route 367
157 Created: 2023-09-09
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 157 |
12 months | 56 |
Ionad Sláinte Príomhúil i gConamara ó dhéas
57 Created: 2024-05-12
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 57 |
12 months | 57 |
Proposed Mervue Bus Route
53 Created: 2024-04-24
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 53 |
12 months | 53 |
Caretaking in The Watermill Apartments
38 Created: 2024-04-25
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 38 |
12 months | 38 |
Justice for Diana Iovanovici Șoșoacă
8874 Created: 2024-10-07
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 8874 |
12 months | 8874 |
Stopp steinbruddet i Bremanger! // Stop the building of a quarry in Bremanger, Norway!
5375 Created: 2024-02-07
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 5375 |
12 months | 5367 |
Keep Screen School in Rackard league with Castlebridge and Curracloe
23 Created: 2024-02-01
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 23 |
12 months | 23 |
Justice For Terence Wheelock Campaign. (JFTW)
749 Created: 2020-09-19
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 749 |
12 months | 26 |
Shane forde
12 Created: 2024-04-24
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 12 |
12 months | 12 |
Reject IEC result
36753 Created: 2024-06-04
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 36753 |
12 months | 36753 |
Stand up for freedom: Stop the expulsion of political dissident Abdulrahman al-Khalidi to Saudi Arabia
1139 Created: 2024-03-04
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 1139 |
12 months | 1138 |
Trap neuter and release
13 Created: 2024-01-12
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 13 |
12 months | 13 |
Ban the use of fireworks
31 Created: 2024-10-22
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 31 |
12 months | 31 |
A polite request to Elon Musk - please uncensor @LucyHunterB
1014 Created: 2024-03-28
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 1014 |
12 months | 1012 |
دعم السيدة كريمة بوغطاس لمواصلة عملها في الخدمات القنصلية بي سفارة تونس بي المملكة المتحدة
211 Created: 2024-05-10
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 211 |
12 months | 211 |
Relocate Robbie Fleming memorial bench from the people of Lisburn & Steven Gerrard to home town cemetery
1106 Created: 2024-06-17
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 1106 |
12 months | 1106 |
The Baltic Sea is NOT a landfill of the battery industry
68287 Created: 2024-02-15
Time period | Number of signatures |
---|---|
All time | 68287 |
12 months | 68274 |