Stuðningur við frumvarp Alþingis um lengingu fæðingarorlofs
Contact the author of the petition
Undirskriftalistinn sendur til ráðherra
2017-05-09 13:40:16Sæl kæru stuðningmenn frumvarps Alþingis um lengingu fæðingarorlofs. Nú hefur undirskriftarlistinn verið sendur Þorsteini Víglundssyni félags- og jafnréttismálaráðherra og nefndarsviði Alþingis. Við vonum að það hafi einhver áhrif.
Kærar þakkir fyrir stuðninginn.
Ninja Ómarsdóttir
Eigum við að koma þessu á flug? Þurfum fleiri undirskriftir.
2017-03-07 14:48:22
Sæl verið þið stuðningsmenn frumvarps um lengingu fæðingarorlofs.
Samkvæmt heimasíðu Alþingis er staða málsins sú að 1. umræða er afstaðin, einsog sjá má á eftirfarandi mynd.
(http://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/?ltg=146&mnr=84)
Það eru nokkur skref eftir sem gefur okkur smá tíma að safna fleiri undirskriftum, en það hafa rétt um 500 manns skrifað undir stuðningsyfirlýsinguna á frumvarpinu að lengja fæðingarorlof. Við þyrftum að auka fjölda undirskrifta til að auka líkur á því að á okkur sé hlustað, því að hér er styrkur í fjöldanum.
Svo hjálpumst að með að koma þessu á flug til að fjölga undirskriftum margfalt!
Ef við, um 500 manns, getum aflað nokkura undirskrifta hver þá myndi fjöldinn margfaldast fljótt. Einnig er gott að deila þessari undirskrifta vefsíðu á samfélagsmiðlum sínum og viðeigandi hópsíðum.
Augljóst er að pabbar, afar og frændur hafa ekki skrifað undir í jafn miklum mæli og mömmur, ömmur og frænkur. Líklega vita þeir ekki af þessari undirskriftasöfnun svo endilega látið boðin berast.
Þetta er ekki bara mál foreldra ungra barna í dag. Þetta kemur við nánustu fjöldskyldumeðlimi og vini sem eru stuðningsnet foreldra ungra barna. Þetta kemur við atvinnurekendur sem geta ekki stólað á það að starfsmenn koma aftur til starfa á ákveðnum tíma þar sem dagvist barna er í ólestri. Þetta kemur við foreldra framtíðar því það getur tekið árafjölda að breyta þessum hlutum til batnaðar og ef þetta skref er ekki tekið núna þá hvenær? Svo síðast en ekki síst, þá kemur þetta við börnin okkar litlu sem þurfa sinn tíma með foreldrum sínum.
Nokkrar umfjallanir hafa verið um þessi mál að undanförnu, m.a. þessi hér að neðan sem hægt er að benda fólki á.
Í forgangi að hækka fæðingarorlof: https://kjarninn.is/skyring/2017-02-03-i-forgangi-ad-haekka-faedingarorlof/?utm_content=bufferf81f8&utm_medium=social&utm_source=facebook.com&utm_campaign=buffer
Hver er tilgangur fæðingarorlofs? http://www.visir.is/hver-er-tilgangur-faedingarorlofs-/article/2017170209116
Fá hvergi pláss hjá dagforeldrum eða ungbarnaleikskóla: http://www.visir.is/fa-hvergi-plass-hja-dagforeldrum-eda-ungbarnaleikskola---svo-hefur-thetta-lika-ahrif-a-felagsthroska-hennar-/article/2017170229571
Tugir á biðlista hjá dagmæðrum í Reykjavík: http://www.visir.is/tugir-a-bidlista-hja-dagmaedrum-i-reykjavik/article/2017170229406