EKKI draga umsóknina tilbaka
Contact the author of the petition
Hvet ykkur til að skrifa undir á thjod.is
2014-02-25 09:56:01Kæru undirskrifendur,
sem upphafsmaður þessarar söfnunar vil ég hvetja ykkur öll til að skrifa LÍKA undir áskorunina á síðunni http://thjod.is
Áskorunin er efnislega mjög svipuð og sú söfnun hefur fengið enn meiri skriðþunga. Sú söfnun er samkeyrð við Þjóðskrá svo hægt er að staðreyna undirskriftir. Það er mikilvægt að skilaboðin til stjórnvalda séu sem skýrust!
Baráttukveðjur
Einar Karl Friðriksson
Skilaboð frá upphafsmanni
2014-02-24 07:22:46Kæru undirskrifendur,
ég þakka ykkur fyrir að taka undir áskorun þá sem ég setti í loftið í morgun. Árangurinn á fyrsta degi er hreint frábær, yfir 10.000 undirskriftir!
Ég vil benda á að í gærkvöld fór af stað ÖNNUR undirskriftasöfnun, með mjög svipaðri áskorun, sem hafði verið í undirbúningi nú um helgina. Ég vil eindregið hvetja ykkur öll til að fara á þá slóð og setja nafn ykkar LÍKA þar, ef þið eruð sammála þeirri áskorun.
Slóðin er: http://thjod.is/
Sú söfnun er samkeyrð með þjóðskrá, þannig að kvittað er undir með því að slá inn kennitölu. Það eru samtökin 'Já - Ísland' sem standa fyrir þeirri söfnun, en undirskrift jafngildir engan veginn stuðningi við þau samtök heldur einfaldlega þeirri áskorun sem sett er fram. Samtökin hafa fleira fólk og fé til að kynna sína söfnun og fylgja henni á eftir og umgjörðin um söfnunina er enn traustari en ég get staðið fyrir.
Þessi söfnun mín er óháð öllum samtökum og ég er ekki "talsmaður" þeirra sem skrifað hafa undir. Ég sjálfur styð síðara framtakið, en ég mun halda þessari síðu opinni, halda söfnuninni á lífi og halda utan um undirskriftir og koma áskorun okkar til skila til stjórnvalda.
Virðingarfyllst,
Einar Karl Friðriksson
netfang: einar.fridriksson@gmail.com
Einar Karl Friðriksson
skilaboð frá upphafsmanni áskorunarinnar 'EKKI draga umsóknina tilbaka'
2014-02-23 22:41:49Kæru undirskrifendur,
ég þakka ykkur fyrir að taka undir áskorun þá sem ég setti í loftið í morgun. Árangurinn í dag er hreint frábær, yfir 9700 undirskriftir!
Ég vil benda á að nú í kvöld fór af stað ÖNNUR undirskriftasöfnun, með mjög svipaðri áskorun, sem hafði verið í undirbúningi nú um helgina. Ég vil eindregið hvetja ykkur öll til að fara á þá slóð og setja nafn ykkar LÍKA þar, ef þið eruð sammála þeirri áskorun.